Seðlabanki Íslands mun beita sér fyrir auknu gegnsæi á gjaldeyrismarkaði með því að birta reglulega gögn um gjaldeyrisviðskipti bankanna, önnur en þau sem fara fram á millibankamarkaði. Ætlunin er meðal annars að varpa ljósi á raunverulega dýpt á markaði sem er sagður vera hindrun í vegi erlendrar fjárfestingar.
Seðlabankinn vill auka gegnsæi á gjaldeyrismarkaði
Seðlabanki Íslands stefnir að því að birta tölur sem sýna raunverulegt umfang gjaldeyrisviðskipta á Íslandi.